Rútuferð á Bolafjall – Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sýnilegur frá Vestfjörðum og Bolafjall er einn af einstökustu stöðunum til að upplifa þennan sjaldgæfa náttúruviðburð.

Vegna öryggis og umferðarstýringar verður vegurinn upp á Bolafjall lokaður almennri umferð fyrr um daginn. Skipulagðar rútuferðir verða í boði frá Bolungarvík upp á fjallið og aftur niður eftir sólmyrkvann.

Mæting og brottför verður við Félagsheimilið í Bolungarvík, þar sem gestir fá afhent aðgangsarmband/farmiða áður en farið er í rútu. Aðgangsarmbandið gildir fyrir ferð upp á Bolafjall og til baka niður aftur.

Ferðir verða farnar reglulega yfir daginn og gestir eru hvattir til að mæta tímanlega, þar sem búast má við miklum fjölda gesta og umferð í Bolungarvík þennan dag. Markmiðið er að tryggja öruggt, skipulagt og þægilegt flæði gesta til og frá Bolafjalli.

Á Bolafjalli gefst gestum tækifæri til að njóta stórbrotins útsýnis og upplifa almyrkvann á einstökum stað. Eftir að viðburði lýkur hefst skipulagður flutningur aftur niður til Bolungarvíkur.

Skilmálar vegna veðurs, breytinga og endurgreiðslu

Miði gildir fyrir skipulagða rútuferð frá Bolungarvík upp á Bolafjall og til baka niður aftur þann 12. ágúst 2026.

Ferðin fer fram óháð skýjafari, rigningu eða takmörkuðu skyggni, svo lengi sem aðstæður til aksturs eru metnar öruggar og yfirvöld heimila akstur á svæðinu. Þar sem um náttúruviðburð er að ræða er ekki hægt að ábyrgjast útsýni, heiðskíran himin eða að sólmyrkvinn sjáist óhindrað.

Keyptir miðar eru almennt ekki endurgreiddir. Endurgreiðsla er aðeins veitt samkvæmt sérstöku samkomulagi eða ef ferð fellur alfarið niður vegna óviðráðanlegra atvika, svo sem lokunar vegar af hálfu yfirvalda, alvarlegra veðuraðstæðna, náttúruhamfara, slysa, neyðarástands eða annarra atvika sem rekstraraðili hefur ekki stjórn á og gera framkvæmd ferðarinnar ómögulega eða óforsvaranlega.

Rekstraraðili áskilur sér rétt til að breyta tímasetningum, brottfararfyrirkomulagi, akstursleið, biðsvæðum eða skipulagi ferðar ef slíkt er nauðsynlegt vegna öryggis, veðurs, umferðarstýringar, fyrirmæla yfirvalda eða annarra aðstæðna á viðburðardegi.

Ef ferð er felld niður af hálfu rekstraraðila vegna óviðráðanlegra atvika verður haft samband við miðahafa eins fljótt og auðið er og farið yfir möguleika á endurgreiðslu


Rútuferð á Bolafjall – Almyrkvi á sólu 12. ágúst 2026

Total ISK 0